Gildandi frá 2026
Hér má finna lög Golfklúbbs Fjallabyggðar, samþykkt á aðalfundi félagsins.
Efnisyfirlit
1. grein – Heiti og aðild
2. grein – Markmið og starfsemi
3. grein – Félagsaðild og gjöld
4. grein – Strarfsár og reikningsár
5. grein – Golfreglur og agi
6. grein – Stjórn
7. grein – Fundir
8. grein – Dagskrá aðalfundar
9. grein – Ályktunarhæfi og kosningaréttur
10. grein – Lagabreytingar
11. grein – Slit félagsins
Félagið heitir Golfklúbbur Fjallabyggðar (GFB).
Heimili og varnarþing er í Fjallabyggð.
Félagið er aðili að Íþrótta- og ungmennasambandi Fjallabyggðar (UÍF), Golfsambandi Íslands (GSÍ), Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélagi Íslands (UMFÍ) og því háður lögum, reglugerðum og samþykktum íþróttahreyfingarinnar.
Tilgangur og markmið félagsins er að iðka, glæða og viðhalda áhuga á golfíþróttinni og styðja þannig almenna íþróttastarfsemi í Fjallabyggð.
Félagið rekur golfvöll, golfskála og aðrar eignir félagsins. Félagið heldur golfmót og stendur fyrir golfæfingum og annarri félagsstarfsemi er tengist golfíþróttinni.
Innganga í félagið er öllum heimil og skal sótt um inngöngu skriflega.
Erlendir ríkisborgarar geta gerst félagsmenn og bera þeir sömu réttindi og skyldur og aðrir félagar nema lög GFB eða GSÍ kveði á um annað.
Aðalfundur ákveður félagsgjald næsta árs að fenginni tillögu stjórnar, sbr. 8. gr.
Gjalddagi félagsgjalds skal vera 1. mars en eindagi 1. júní.
Þeir sem ekki hafa greitt félagsgjald eða samið um trygga greiðslu við GFB fyrir eindaga teljast ekki lengur félagsmenn og skulu teknir af félagaskrá.
Stjórn félagsins hefur heimild til að:
ákveða inntökugjald nýrra félaga,
ákveða álögur vegna staðgreiðslu félagsgjalds eftir eindaga,
veita staðgreiðsluafslátt af félagsgjaldi,
veita sérstakan afslátt til fjarfélaga vegna aðseturs utan Fjallabyggðar,
ákveða vallargjöld og afslætti þeim tengdum.
Stjórn félagsins er heimilt að útnefna heiðursfélaga fyrir framúrskarandi störf fyrir félagið og golfíþróttina. Heiðursfélagar skulu vera undanþegnir greiðslu félagsgjalda ævilangt en teljast þó fullgildir félagar.
Félagið heitir Golfklúbbur Fjallabyggðar (GFB). Heimili og varnarþing er í Fjallabyggð. Félagið er aðili að Íþrótta- og ungmennasambandi Fjallabyggðar (UÍF), Golfsambandi Íslands (GSÍ), Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélagi Íslands (UMFÍ) og því háður lögum, reglugerðum og samþykktum íþróttahreyfingarinnar.
Reikningsár og starfsár félagsins er frá 1. nóvember til 31. október.
Við golfleik skal fara eftir gildandi golfreglum eins og þær eru hverju sinni viðurkenndar af Golfsambandi Íslands (GSÍ).
Stjórn setur sérreglur og skilmála setur stjórnin eftir því sem þurfa þykir, enda séu þær í samræmi við golfreglur og reglugerðir GSÍ.
Félögum er skylt að fara eftir reglum og skilmálum stjórnar um leik, umferð og umgengni um golfvöll, golfskála, önnur mannvirki og eignir félagsins.
Brot gegn ákvæðum þessarar greinar geta varðað áminningu, tímabundnum réttindamissi eða brottvísun úr félaginu eftir ákvörðun stjórnar.
Stjórn klúbbsins skipa fimm menn; formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi.
Á aðalfundi skal formaður kosinn til eins árs í senn. Aðrir stjórnarmenn eru kosnir til tveggja ára í senn, þannig að tveir eru kosnir annað árið og tveir hitt.
Stjórnarmenn skipta með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund.
Á aðalfundi skal einnig kjósa einn varamann til stjórnar og tvo skoðunarmenn til eins árs í senn. Varamaður situr stjórnarfundi með málfrelsi og tillögurétt.
Stjórnin skipar í nefndir og aðrar trúnaðarstöður og setur þeim reglur eða starfslýsingar.
Aðalfundur er æðsta vald félagsins og fer með endanlegt úrskurðarvald í málefnum þess. Hann skal haldinn eigi síðar en 15. mars ár hvert. Aðalfundur er lögmætur ef löglega hefur verið til hans boðað, óháð fjölda fundarmanna.
Aðalfund og aðra fundi félagsins skal boða tryggilega með minnst 14 daga fyrirvara. Í fundarboði skal tilgreina dagskrá og tillögur um lagabreytingar sem borist hafa innan tilskilins frests.
Fundarboð má senda rafrænt, þar á meðal með tölvupósti eða birtingu á opinberum miðlum félagsins. Heimilt er að halda fundi með rafrænum hætti, enda sé tryggt að félagsmenn geti tekið fullan þátt í umræðum og atkvæðagreiðslu.
Tillögur um lagabreytingar skulu berast stjórn félagsins með minnst þriggja vikna fyrirvara fyrir aðalfund.
Stjórn félagsins eða 20% fullgildra félagsmanna geta boðað til aukaaðalfundar og gilda sömu reglur og um aðalfund, eftir því sem við á.
Stjórn skal boða til félagsfundar ef minnst einn tíundi fullgildra félagsmanna óskar þess skriflega og með rökstuðningi.
Meirihlutasamþykki félagsfundar þarf til fjárfrekra framkvæmda sem ekki eru ákveðnar í samþykktri fjárhagsáætlun.
Aukaaðalfund og félagsfund skal halda innan þriggja vikna frá því að stjórn berst gild fundarbeiðni.
Á aðalfundi eða félagsfundi skal í upphafi fundar kjósa sérstakan fundarstjóra og fundarritara.
Á aðalfundi skulu mál tekin fyrir í þeirri röð sem hér segir:
Skýrsla stjórnar
Lagðir fram skoðaðir reikningar
Umræða um skýrslu stjórnar og reikninga. Reikningar bornir undir atkvæði
Lagðar fram tillögur um breytingu laga og reglugerða. Umræður, tillögurnar bornar undir atkvæði
Stjórn leggur fram fjárhagsáætlun næsta starfstímabils ásamt tillögum um félagsgjöld
Kosning stjórnar og varamanns í stjórn skv. 6. gr
Kosning tveggja skoðunarmanna skv. 6. gr
Önnur mál
Aðalfundur er löglegur og ályktunarfær um öll málefni félagsins sé löglega til hans boðað. Skal þar ráða einfaldur meirihluti atkvæða viðstaddra fullgildra félagsmanna nema annað sé ákveðið. Kosningarétt og kjörgengi hafa þeir fullgildir félagar sem fullnægja 3. gr. laga klúbbsins og eru/verða fullra 16 ára á viðkomandi almanaksári. Yngri félagar og fjarfélagar hafa rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti.
Lögum þessum má ekki breyta nema á löglega boðuðum aðalfundi.
Tvo þriðju hluta atkvæða viðstaddra fullgildra atkvæðisbærra félagsmanna þarf til að samþykkja breytingu á lögum þessum.
Tillögu um slit á félaginu skal leggja fram á lögmætum aðalfundi félagsins og skal það koma fram í fundarboði að fjalla eigi um slit félagsins.
Samþykki tveggja þriðju hluta atkvæða þarf til að félagið verði slitið.
Við slit renna eignir félagsins til íþrótta- og tómstundamála í Fjallabygggð samkvæmt ákvörðun aðalfundar og í samráði við sveitarfélagið Fjallabyggð.
Samþykkt á aðalfundi 24. mars 2026
Lög Golfklúbbs Fjallabyggðar