Skeggjabrekkuvöllur
Skeggjabrekkuvöllur
9 holur • Par 33 • Ólafsfjörður
Skeggjabrekkuvöllur er staðsettur í mynni Skeggjabrekkudals, í um 70 metra hæð yfir sjávarmáli.
Útsýnið er einstakt – há fjöll umlykja svæðið og víðsýnt er yfir Ólafsfjarðarvatn og út fjörðinn.
Þrátt fyrir að völlurinn sé 9 holur, par 33, er hann krefjandi. Landslagið spilar stórt hlutverk og flatirnar gera góðar kröfur til kylfinga.
„Þó að völlurinn sé stuttur er hann sýnd veiði en ekki gefin,“
— Rósa Jónsdóttir, formaður GFB
Skeggjabrekkuvöllur
Ólafsfjörður